árið 202

Skyldu vera margir næturklúbbar í Indónesíu þá?

 

hef svosem ekki meira að segja um fréttina...


mbl.is Tilræðismenn teknir af lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

það lítur enginn út eins og hryðjuverkamaður

Ég bendi bara á síðustu færsluna mína. Ég veit að aðstandendur þessarar síðu gera sér varla grein fyrir þessu, en það er alveg ótrúlega hrokafullt að segja að ljóshærðir Íslendingar "líti ekki út" eins og hryðjuverkamenn...
mbl.is Mótmæli vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ég er ekki hryðjuverkamaður"

Ég get ekki sagt hversu rétt eða rangt Gordon Brown og Alistair Darling höfðu fyrir þegar þeir frystu eignir íslenskra banka í Englandi. Það mesta sem ég get séð er að flestir hafi klúðrað einhverju en þó er alltaf auðvelt að vera vitur eftirá. En það sem ég er komin með alveg upp í kok með er þetta hryðjuverkarugl.

Já, það er rétt að bresku lögin sem voru notuð til að fyrsta eignir bankanna voru hluti af anti-terrorism lagabálki, en aldrei kallaði neinn Íslendinga hryðjuverkamenn.

Auðvitað skil ég að það er auðvelt að mótmæla þessu, að það er gott að hafa blóraböggul, og það er gaman að dragast inn í þessa múgsefjun að hóta bretum öllu illu eða mótmæla þessu hryðjuverkamannanefni. En kommon.

Að setja myndir inn á heimasíðu af venjulegu íslensku fólki og segja að það líti ekki út eins og hryðjuverkamaður? Er bara helber rasismi. Því hvernig lítur hryðjuverkamaður út? Arabi? Með dökkt skinn? Veifandi kóraninum og hrópandi Allah?

Málið er það enginn lítur út eins og hryðjuverkamaður. Hryðjuverkamaður (eða kona) er sá sem framkvæmir hryðjuverk. Og núna veit ég að fólk mun taka andann á lofti, en Íslendingar gætu alveg framkvæmt hryðjuverk. Ég vona ekki, vonandi mun enginn nokkurn tímann aftur gera neitt svo hræðilegt, og það er alveg rétt að á mörgum stöðum í heiminum líta hryðjuverk út fyrir að vera mun vænlegri kostur til að ná einhverju fram heldur en á t.d. stöðum eins og Íslandi, en það breytir því ekki að þetta mál er nálgast á alveg fáránlegum forsendum.

Ég er mjög hrifin af mótmælum. Endilega mótmælið hvernig er búið að halda á málunum ef þið eruð ekki sátt við það, endilega segið þið Gordon Brown að þetta sé ekki ykkur að kenna, því auðvitað er algjört rugl að venjulegir Íslendingar lendi með margra milljarða skuldir vegna gjörða annarra, en í guðanna bænum - hættið að nota þennan hryðjuverkastimpil!!! Það skaðar engan nema sjálf okkur.

Og þetta er ástæðan fyrir því að ég mun ekki skrifa undir www.indefence.is
mbl.is Hringt frítt í vini og vandamenn erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

myndir

Myndir hérna!

 http://mfrost.typepad.com/cute_overload/2008/10/area-man-punche.html


mbl.is Kýldi hákarl kaldan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jiminn eini

Hvad gerist nuna? Eg bara veit ekki...
mbl.is Björgunaráætlunin felld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég var á þessu...

... samt allt annarsstaðar. World Wide Knit In Public day í Calgary var haldinn niður við Bow ána í sól og sumaryl. Svaka gaman!  
mbl.is Alþjóðlegi prjónadagurinn á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

í númer tíu...

Ég verð að segja að Calgary er bara ágætis borg. Þó að maður fái haglél í miðjum júní...
mbl.is Mest búsæld í Vancouver
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband